150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

vörumerki.

640. mál
[18:34]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Oft hefur verið tekist á um einkavæðingu á ýmsu hér í þingsal. Með þessu frumvarpi er í rauninni verið að einkavæða ýmislegt annað. Það er verið að einkavæða hljóð, liti, bragð, lykt, tölustafi og ýmislegt fleira. Þetta er töluverð útvíkkun á einokunarrétti á hugmyndum og upplifunum og er í þessu tilfelli í formi vörumerkjaréttar. Mér finnst það ekki góð þróun. Þetta er hættuleg þróun. Þetta er þróun sem við hefðum kannski átt að koma í veg fyrir með betri hagsmunagæslu fyrir Ísland innan Evrópu, en þetta verður víst svona. Ég vildi bara hafa varað við þessu hér og segi að sjálfsögðu nei.