150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

húsnæðismál .

926. mál
[18:56]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina og fagna því að þetta frumvarp sé komið fram enda er málið mjög mikilvægt, hluti af lífskjarasamningi.

Mig langar í byrjun að spyrja hæstv. ráðherra einlæglega hvort hann geri ráð fyrir að málið verði afgreitt fyrir lok þings þar sem gert er ráð fyrir tveimur fundum hv. velferðarnefndar í viðbót samkvæmt dagskrá.

Svo vil ég spyrja hæstv. ráðherra út í tekjuþak sem nú er komið í frumvarpið en aðilar sem gerðu lífskjarasamninga kannast ekki við að hafi verið í samkomulagi og telja að verið sé að fara á svig við lífskjarasamninga.

Í þriðja lagi vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé löglegt að gera þá kröfu til umsækjenda að stuðningur ríkis sé skilyrtur við að þeir taki út séreignarsparnað, hvort slíkt sé samkvæmt lögum.