150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

húsnæðismál .

926. mál
[19:08]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra. Eins og nefnt var hér þurfa allir þak yfir höfuðið og tek ég heils hugar undir það. En umfang þess fyrirkomulags sem lagt er upp með er u.þ.b. 3,7 milljarðar á ári, eins og segir í greinargerðinni, sem er mikið fé. Þetta á að ræða hér á mjög skömmum tíma, afgreiða bara á nokkrum dögum, og sem nefndarmanni í fjárlaganefnd finnst mér svolítið bratt lagt af stað í ljósi stöðu ríkissjóðs o.s.frv.

Það sem ég vildi koma inn á er að við þurfum líka að horfa til reynslunnar í þessum málum. Það fór ekkert sérlega vel þegar Íbúðalánasjóður sem þá var ákvað að bjóða upp á viðbótarlán, svokölluð hattalán, með sparisjóðunum í samkeppni á markaði á sínum tíma. Það gekk ekki vel. Maður spyr: Er það ekki í raun og veru þannig að skattgreiðendur eru að niðurgreiða vexti (Forseti hringir.) á lánum til tiltekins hóps fólks? (Forseti hringir.) Það er ekkert sem heitir vaxtalaust lán, það er bara (Forseti hringir.) þannig. Ef hæstv. ráðherra gæti komið inn á þetta.