150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

húsnæðismál .

926. mál
[19:12]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, undanþágur geta auðvitað skapað flækjustig. Hins vegar held ég að það sé mikilvægt að það séu einhverjar undanþágur. Þær eru ekki hugsaðar fyrir ákveðna hópa heldur til þess að bregðast við ef um er að ræða einhver jaðartilvik sem kallað er eftir að þurfi að bregðast við.

Um ummæli hv. þingmanns um að fólk sé misduglegt að safna vil ég segja að ég skynja að hann sé eiginlega að segja: Af hverju erum við eiginlega að þessu? Þarf fólk ekki bara að vera duglegra að safna? Það eru auðvitað ekki allir í samfélaginu sem geta það. Fólk hefur kannski greiðslugetu til þess að borga af lánum til að geta eignast húsnæði og myndað eigið fé í því. Í mínu tilfelli t.d., þegar ég keypti mína fyrstu íbúð, fékk ég lán hjá tengdapabba. Það var ekki á mjög háum vöxtum, það var á frekar lágum vöxtum. En það eru bara ekki allir í þeirri stöðu að geta farið til mömmu og pabba, tengdamömmu, tengdapabba, ömmu og afa og fengið lán fyrir því. Við erum að hugsa um að hjálpa því fólki sem býr ekki við það öryggisnet að geta það en vill komast í eigið húsnæði og mynda eigið fé í því og hefur fjárhagslega getu til þess að greiða af því.