húsnæðismál .
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. En þarna er verið að gefa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fáránlegt vald yfir vöxtum, yfir launum. Og ég segi fyrir mitt leyti: Ef einstaklingur fer í svona rosalega góða stöðu, tökum mig sem dæmi, af örorkubótum á þingmannalaun, þá efast ég um að þessi einstaklingur verði mikið lengur inni í þessu kerfi. Hann mun færa sig út úr því. Því að þetta er ekkert óskakerfi, maður þarf að fara á ákveðinn stað. Það er ákveðinn aðili sem er að byggja þetta. Það sem ég óttast líka er að verið sé að búa til hálfgert gettó: Hérna eru lægstu launin. Hér fara þeir í kassa í sem búnir eru til úr gámum, raðað upp vegna þess að þetta á að vera svo ódýrt. Þá er búið að ýta öllum í útjaðar bæjarins: Hérna eigið þið að vera af því að þið hafið ekki nógu háar tekjur. Eigum við hin að vera einhvers staðar annars staðar?