150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

húsnæðismál .

926. mál
[19:22]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Þetta frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, hlutdeildarlán, er komið inn í þingið. Ég fagna því mjög af því að ég held að það sé mjög mikilvægt mál. Við erum jú að reyna að efla húsnæðismarkaðinn og grípa þá sem eru í mestum vanda og þess vegna skiptir miklu máli að vandað sé til verka. Þetta er hluti af lífskjarasamningnum sem var samþykktur fyrir 14 mánuðum eða svo. Ég hefði kannski viljað sjá málið koma hingað inn fyrr af því að þetta er harla brýnt. En gott að það sé komið. Þetta fyrirkomulag, hlutdeildarlán, hefur gefið góða raun víða um heim þannig að ég vona að við berum gæfu til að láta það lukkast vel hjá okkur líka. Það er kannski þess vegna sem maður er pínu sleginn yfir hraðanum, að þetta komi rétt fyrir þinglok. En ég ætla ekki að eyða öllum tímanum í það.

Frumvarpið var tilbúið, að mér skilst, fyrir þremur mánuðum. Það hefur ekki farið í gegnum samráðsgátt, það hefur ekki verið borið undir þá sem eru aðilar að lífskjarasamningnum. Við í hv. velferðarnefnd munum að sjálfsögðu kalla allt það fólk til okkar af því að við verðum jú að kanna hvort frumvarpið uppfyllir þær kröfur sem gerðar voru í þeim samningi. Ætlar ríkisstjórnin að standa við lífskjarasamninginn? Er verið að hraða þessu máli í gegnum þingið eða mun það mjakast hægt og rólega og verða tekið upp í haust? Það er ekki í höndum þeirrar sem hér stendur, öfugt við það sem hæstv. ráðherra sagði áðan vegna þess að það er jú meiri hlutinn sem fer með dagskrárvald í þingsal, forseti þingsins raðar niður málum og við reyndum, bara svo því sé haldið til haga, eins og við gátum í dag að fá þetta mál fyrr á dagskrá til þess að hægt væri að ræða það í nefnd og senda það strax til umsagnar, af því að ég tel slíkt mjög mikilvægt.

Þá að efni frumvarpsins. Þegar umsækjandi getur alls ekki fjármagnað kaup sín á íbúðarhúsnæði sjálfur nema með hlutdeildarláni á hann rétt á að fá slíkt lán. Tekjumarkið stendur í mörgum. Þetta þarf að vera fyrsta fasteign eða að viðkomandi hafi ekki átt fasteign sl. fimm ár og að einstaklingur hafi tekjur innan við sjö og hálfa milljón á ári eða hjón innan við tíu og hálfa milljón á ári. Þetta eru 630.000 í heildarlaun með öllu fyrir einstakling og 880.000 í heildarlaun með öllu fyrir hjón. Ég veit eftir samtöl mín við ýmsa að þetta varð þeim mikið áfall, þ.e. þeim sem eru aðilar að lífskjarasamningnum vegna þess að þetta getur gert það að verkum að viðkomandi, þegar hann er með þetta lágar tekjur, fær þá ekki greiðslumat fyrir þeim íbúðum sem standa til boða. Við gerðum óformlega könnun í þingflokki Samfylkingar og könnuðum aðeins hver staðan er á nýjum íbúðum núna. Það er harla snúið, a.m.k. á höfuðborgarsvæðinu, að fá nýja íbúð fyrir minna en 45 milljónir. Við fundum eina. Ég átta mig á að fyrirhugað er að lána til bygginga og gera ýmsa samninga við þá sem eru að byggja og slíkt en þetta verður engu að síður að vera fyrir venjulegt fólk.

Þá vantar í frumvarpið skilgreiningar á nýjum íbúðum og hagkvæmum íbúðum. Það hvernig þetta verður allt saman bíður betri tíma. Þá er vert að benda á að lánveitingar takmarkast við heimildir í fjárlögum til útlánaflokksins hverju sinni, eins og kemur hér fram í a-lið 2. gr., í lokamálslið, og segir þar, með leyfi forseta:

„Hafi heimild samkvæmt fjárlögum verið fullnýtt er Húsnæðis- og mannvirkjastofnun óheimilt að samþykkja umsókn um lán þrátt fyrir að umsækjandi uppfylli skilyrði fyrir því.“

Með öðrum orðum, þetta frumvarp er þannig úr garði gert að það getur hæglega mismunað fólki eftir því hvenær árs það sækir um vegna þess að sá sjóður sem Alþingi skammtar kann að verða uppurinn. Þetta er auðvitað ekki sérlega vænlegt til árangurs, sérstaklega ekki þegar við erum bæði að gera þetta svona og veita hlutdeildarlán eingöngu fyrir nýjum íbúðum. Það má ekki lána fyrir gömlum íbúðum. Þá er umhverfið auðvitað þrengra.

Almennu skilyrðin eru auðvitað að standast greiðslumat, lán á fyrsta veðrétti má ekki vera til lengri tíma en 25 ára og umsækjandi skal samkvæmt 7. tölulið b-liðar 2. gr. frumvarpsins verja skattfrjálsri ráðstöfun séreignarsparnaðar til lækkunar á höfuðstóli fasteignaláns á fyrsta veðrétti. Ég spurði hæstv. ráðherra áðan hvort þetta væri löglegt og fékk ekki svar við því. En ég held að það hljóti að vera ein af þeim spurningum sem við í hv. velferðarnefnd þurfum að spyrja sérfræðinga að því að ég er ekki alveg viss um að löggjafinn geti skilyrt opinberan stuðning með þeim hætti að fólk ráðstafi framtíðarsparnaði sínum á sama tíma. Ég held að löggjafinn hafi enga heimild til slíks. Við munum spyrjast fyrir um það.

Fólk hefur áhyggjur af því að þetta gagnist helst þeim sem eru rétt nýútskrifaðir, nýir á vinnumarkaði, á lægri launum, en ekki þeim sem eldri eru, þeim sem mögulega misstu húsnæði sitt í hruninu, þeim sem hafa verið lengi eða mögulega alltaf á leigumarkaði, vegna þess að tekjutengingin er með þeim hætti.

Í d-lið 2. gr. frumvarpsins vekur athygli mína hin víðtæka reglugerðarheimild sem ráðherra er veitt. Ég er aðeins hugsi yfir því hversu mikil skilyrði eru sett þarna inn varðandi hvernig húsnæðið er úr garði gert o.s.frv. Þarna getur mikil geðþóttaákvörðun búið að baki ýmsu. Það er líka vert að benda á að lántaki má ekki framleigja húsnæðið nema með samþykki Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Maður veltir fyrir sér hvernig það hentar t.d. þeim sem eru nýkomnir úr námi og fara mögulega í skamma stund í framhaldsnám, hvort það verði heimilað, hvort ráðherra muni þá veita sérstaka heimild fyrir slíkum reglum eða hvernig það er.

Ég ætla ekki að tefja umræðuna mikið lengur. Ég fagna því að þetta komi fram en mér sýnist á frumvarpinu að það þurfi að leggja mjög mikla vinnu í það og leita margra svara.

Í lokin, virðulegur forseti, vil ég minnast aðeins á það sem kemur fram í a-lið 2. gr. frumvarpsins en þar segir, með leyfi forseta:

„Hlutdeildarlán er veitt á öðrum veðrétti á eftir fasteignaláni samkvæmt lögum um fasteignalán til neytenda og ber hvorki vexti né afborganir á lánstímanum …“

Þannig er, virðulegur forseti, að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur það í lánareglum sínum að samtala lána á fasteign á fyrsta og öðrum veðrétti eða fyrsta, öðrum og þriðja veðrétti megi aldrei vera yfir 30 milljónum kr., samtala allra lána sem hvíla á fasteign samkvæmt reglum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar má aldrei vera yfir 30 milljónum kr. Þeir sem eru með gömul Íbúðalánasjóðslán sem eru mögulega á öðrum eða þriðja veðrétti og standa núna í skuldbreytingum vegna hagstæðari lánakjara eins og eru á markaðnum í dag lenda í því að fá synjun hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fyrir veðleyfi þegar verið er að skuldbreyta yfir í hagstæðara lán á fyrsta veðrétti. Það er auðvitað mjög bagalegt að opinber stofnun eins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun beiti sér með þessum hætti en þetta eru reglurnar. Þar sem þetta eru reglurnar, að hámarkstala lána megi ekki ásamt hlutdeildarláni fara yfir 30 milljónir samkvæmt reglum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, þá veltir maður fyrir sér hvers konar íbúðir stjórnvöld sjá fyrir sér að einstaklingar geti keypt, þeir sem fá mögulega hlutdeildarlán, ef fasteignin má ekki vera dýrari en 30 milljónir. Þá veltir maður fyrir sér hvaða fjölskylda geti þá nýtt sér þetta því að fjölskyldur með börn finna nú varla húsnæði sem er á svo lágu verði. En við munum vonandi vinna þetta hratt og vel og af fagmennsku, ef meiri hluti nefndarinnar leyfir. Annars þakka ég bara fyrir að þetta frumvarp er komið fram.