húsnæðismál .
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður þekkir svokölluð hattalán sem voru í boði á sínum tíma á vegum Íbúðalánasjóðs. Þetta voru viðbótarlán þegar Íbúðalánasjóður fór með sparisjóðunum í samkeppni á markaði í raun og veru. Þessi lán komu ekki vel út. Það má því spyrja um reynsluna, en hæstv. ráðherra segir að reynslan af þessum lánum sé góð í Skotlandi og Bretlandi. Það væri ágætt að fá það frá hv. þingmanni, af því að hann er formaður efnahags- og viðskiptanefndar, hvort hann telji að það séu í raun og veru sambærilegar aðstæður, hvort eðlilegt sé að bera það fram með þeim hætti sem hæstv. ráðherra gerði í málflutningi sínum.
Auk þess vil ég koma að því sem hv. þingmaður nefndi í ræðunni, að það er verið að færa ráðherra heilmikil völd í reglugerð. Það er alveg ljóst af orðum þingmannsins að hann er mótfallinn því. Þá spyr ég bara hv. þingmann hreint út: Telur hann að þetta mál fari í gegn eins og það er lagt upp? Er samstaða innan ríkisstjórnarinnar um að afgreiða málið og samþykkja það og keyra í gegn á örfáum dögum? Svo ekki sé nú minnst á þann mikla kostnað sem fylgir því í þeirri stöðu sem við erum í í efnahagsmálum en samt skuli ekki vera meiri tími til að fara yfir það og öll þau álitamál sem hv. þingmaður nefndi sérstaklega og gerði mjög vel grein fyrir. Telur hv. þingmaður að þetta mál verði afgreitt á næstu dögum?