húsnæðismál .
Virðulegur forseti. Ég ætla að blanda mér aðeins í þessa umræðu. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, hlutdeildarlán. Ég fagna því að komið sé fram frumvarp um þessi mál. Beðið hefur verið eftir frumvarpi sem lýtur að því að styðja við ungt fólk og tekjulágt sem vill kaupa sína fyrstu íbúð og sú hugsun sem er á bak við frumvarpið er góðra gjalda verð. Það er hluti af lífskjarasamningnum og við vitum að séreignarstefna ríkir í landinu. Það þarf líka að auðvelda tekjulágu fólki að eignast húsnæði og ég held að verið sé að reyna eins og hægt er að útfæra það með skynsamlegum hætti. Vissulega eru þarna ýmsir gallar eða spurningar sem vakna um hvort ekki væri hægt að útfæra ýmsa hluti öðruvísi og um það mun velferðarnefnd fjalla.
Áhyggjur mínar, og í raun og veru fyrirvari við málið, eru sérstaklega af uppbyggingu og möguleikum fólks með litlar tekjur á landsbyggðinni. Ég tel mögulegt að mæta þeim sjónarmiðum að tekjulágt fólk sem vill eignast sína fyrstu íbúð hafi möguleika á að fá hlutdeildarlán og að ýmsar leiðir séu til þess. En það sem stingur í augun er að hlutdeildarlán séu bundin við nýbyggingar, nýjar íbúðir. Veruleikinn er sá á mörgum landsvæðum, hvort sem við köllum þau brothættar byggðir eða köld svæði eða svæði sem flokkast ekki undir markaðssvæði, sér maður ekki fram á að byggt verði nýtt húsnæði þó að þetta frumvarp liggi fyrir. Því ræður ýmislegt, bæði íbúafjöldi, endursöluverð og annað því um líkt. Hvers á tekjulágt fólk á þeim svæðum að gjalda sem vill komast inn í svona úrræði og sér ekki fram á að þar verði byggt og getur ekki nýtt þetta til að kaupa það húsnæði sem fyrir er á svæðinu? Mér finnst það mismunun. Eftir að hafa horft upp á gífurlegan sogkraft á höfuðborgarsvæðið og aðra þéttbýlisstaði á landinu í gegnum árin finnst mér þetta geta orðið til þess að ýta enn frekar undir það að fólk sem fellur undir þessar skilgreiningar, að eiga rétt á slíkum hlutdeildarlánum, sjái sæng sína upp reidda og flytji búferlum þangað sem hægt er að fá nýtt og gott húsnæði á þessum kjörum sem eru góð. Það getur varla verið tilgangurinn að skilja það fólk eftir eða ýta enn frekar undir að það velji að flytja og fara þangað sem hægt er að komast inn í slíkt húsnæði þar sem nýbyggingar eru.
Auðvitað skil ég í samhengi hlutanna að verið er að gera ákveðna samninga með hliðsjón af því hvað aðilar vinnumarkaðarins telja rétt. Þetta er auðvitað framkvæmdadrifið frumvarp og gott að menn horfi til þess að ef það væri ekki tengt nýbyggingum væri hætta á að íbúðaverð hækkaði. En það hefur líka þær afleiðingar að fólk sem síst á það skilið getur ekki nýtt sér úrræðið á fámennari stöðum. Mér finnst að það eigi að reyna að mæta þeim sjónarmiðum með mjög jákvæðum hætti í vinnu nefndarinnar, hvort sem það yrði gert með hærri hlutdeildarlánum inn á þessi svæði, sem er til skilgreining á, bæði varðandi það þegar fjallað var um almennar leiguíbúðir og uppbyggingu þeirra, eða að horfa til byggðakorts Byggðastofnunar yfir þau svæði. Þetta væri tengt þannig að skyldan um að lánin séu fyrir nýjum íbúðum, sem hafa verið samþykktar af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem hagkvæmar íbúðir, gilti ekki um svæði sem væru skilgreind eftir stöðlum sem Byggðastofnun hefur útfært sem brothætt svæði og falla undir byggðakort ESA. Ég held að það væri mjög auðvelt að útfæra það ef vilji væri fyrir hendi. Það mætti líka horfa til þess að hækka hlutdeildarlán á þeim svæðum svo það væri gulrót fyrir byggingarverktaka að byggja íbúðir á slíkum svæðum þó að fjöldi þeirra yrði alltaf í samhengi við möguleika og vöxt á svæðinu. Það segir sig sjálft.
Málið er í stórum dráttum gott. Hugsunin er góð og löngu kominn tími til að standa með fólki sem er með lágar tekjur og er að fara út í sín fyrstu íbúðarkaup því að veruleikinn er sá í dag að ungt fólk þarf ekkert endilega að vera með lægstu tekjur, það treystir samt á að fá stuðning við að borga útborgun í húsnæði frá foreldrum sínum eða nánustu ættingjum. Og það er auðvitað ekki eðlilegt að í okkar ríka samfélagi þurfi að fara slíkar krókaleiðir.
Einhver segir e.t.v. að á landsbyggðinni sé íbúðaverð miklu lægra en á stærri svæðunum eins og t.d. höfuðborgarsvæðinu, Akureyri eða Akranesi. Fólk munar minna um að leggja út fyrir innborgun fyrir húsnæði þar sem verðið er lægra. En þá komum við að því að bankastofnanir hafa ekki verið mjög áfjáðar í að lána á þessum svæðum yfir höfuð. Þar stendur hnífurinn í kúnni líka. Þó að íbúðaverð sé lægra, endursöluverðið er auðvitað í samræmi við það, er eins og verið sé að draga það algerlega, ég veit ekki hvað skal segja, frá innstu hjartans rótum að skoða möguleika á því að lána inn á þau svæði. Sorglegt er að það sýnist vera að bankar allra landsmanna — það er auðvitað Íslandsbanki og Landsbankinn í dag sem við eigum sjálf, ríkið — og Arion banki og aðrar lánastofnanir virðast ekki hafa trú á svæðunum eða treysta því að íbúar hafi möguleika á að greiða af þeim lánum sem hugsanlega fengjust. Það er allt of algengt að fjármálastofnanir standi ekki með uppbyggingu í veikari byggðum á landsbyggðinni þó að þar sé kannski margt að gerast sem ýtir undir að menn eigi virkilega að standa með uppbyggingu í þeim byggðum, hafa trú á þeim og koma hinum svokölluðu hjólum atvinnulífsins í gang og möguleikum á auknum tekjum og uppgangi á viðkomandi svæðum.
Ég treysti því að velferðarnefnd og hæstv. ráðherra sem hlýðir á mál mitt skoði í þessu samhengi hvort ekki sé hægt að mæta þeim sjónarmiðum með einhverjum hætti. Ég tel að með því væri stutt við jafnræði og möguleika fólks við þessar aðstæður hvar sem er á landinu. Ég treysti því að við skiljum málið ekki eftir í lausu lofti. Þetta er hluti af lífskjarasamningnum og mikilvægt að við klárum það á þessu þingi.