húsnæðismál .
Virðulegur forseti. Tíminn er afstætt hugtak, svo maður gerist nú heimspekilegur að kvöldi dags. Auðvitað fer það eftir því hvernig andinn svífur hér yfir vötnum og hvað við leggjum mikla áherslu á að uppfylla þennan hluta lífskjarasamningsins og reyna samt að setja málið í eins góðan búning og við mögulega getum á þessum skamma tíma. Auðvitað vildi ég gjarnan við gætum klárað það og ég held að það sé nú það sem við stefnum á. En þá þurfum við, burt séð frá því hvort við tilheyrum svokallaðri stjórnarandstöðu eða meiri hluta, að leggja okkar af mörkum í því. Ég tel að það gæti gerst en við skulum sjá hvað setur.
Í lokin vil ég segja, af því að við töluðum um uppbyggingu húsnæðis á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu og möguleika á að festa kaup á húsnæði í eldri íbúðahverfum með hlutdeildarlánum, að ég gleymdi að nefna kynslóðaskipti til sveita. Oftar en ekki er fólk þar ekki með háar tekjur og ungt fólk, sem er að taka við búi og það er gamalt íbúðarhús á jörðinni, hefur kannski áhuga á að kaupa það af þeim sem þar eru, hvort sem það eru skyldmenni eða ekki. Mér finnst að það þurfi að horfa líka til þessara svæða í sveitum landsins þar sem ungt fólk með lágar tekjur vill kaupa húsnæði af þeim sem eru þar fyrir og ekki ráðast í nýbyggingu af því að það hefur ekki efni á því í upphafi.
Ég held að það þurfi að skoða þetta allt og ég held að það sé alveg hægt að gera það með góðu móti og það þurfi ekki endilega að taka langan tíma ef vilji er fyrir hendi.