afsögn formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Forseti. Fyrir nærri fjörutíu árum sagði Vilmundur Gylfason sögu af varðhundum valdsins og aðferðum þeirra við að halda uppreisnarmönnum niðri og gagnrýni úti. Fátt hefur breyst síðan. Tilraunir okkar í minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar til að sinna eftirlitshlutverki nefndarinnar hafa einungis orðið meiri hlutanum tilefni til valdníðslu og linnulausra árása. Skýrasta dæmið um þetta er hvernig meiri hlutinn stendur í vegi fyrir frumkvæðisathugun á hæfi hæstv. sjávarútvegsráðherra en hæstv. forsætisráðherra kallar það góða niðurstöðu. Með þessu er meiri hlutinn að setja hættulegt fordæmi og veikja eftirlitshlutverk Alþingis með framkvæmdarvaldinu. En til þess að réttlæta þessa aðför sína kýs meiri hluti nefndarinnar að draga persónu mína sífellt niður í svaðið og nota mig sem blóraböggul. Þessi aðferðafræði, að skjóta sendiboðann, er þaulreynd þöggunar- og kúgunartaktík. Ég mótmæli þessari aðför. Mér misbýður þetta leikrit og ég ætla ekki að taka þátt í því lengur. Meiri hlutinn verður að finna sér aðrar átyllur til þess að réttlæta aðför sína að eftirlitshlutverki nefndarinnar og þingsins.
Formennsku minni í þessari nefnd er hér með lokið.