150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

afsögn formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

[15:10]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég get ekki orða bundist og kem hér upp. Það sem ég hef orðið vitni að í þessari nefnd sé ég ekki að sé ólíkt öðrum nefndum. Þar hefur ríkt vantraust og það hefur verið á báða bóga, ekki hvað síst frá minni hluta til meiri hluta. Í ljósi þess að minni hlutinn talaði um aðrar nefndir og þingmenn í þeim þá get ég alls ekki tekið undir þetta. Meira hef ég ekki um þetta að segja.