afsögn formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Herra forseti. Manni bregður svo sannarlega við fréttir sem þessar. Ég finn til með hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, enda getur þetta ekki hafa verið auðveld ákvörðun að taka. Það hlýtur að vera algerlega óásættanlegt að andrúmsloft innan þingnefndar sé þannig að formaður treysti sér ekki til að starfa áfram. Það er ekki hægt að horfa upp á það á þinginu, Alþingi Íslendinga, að jafn mikilvæg nefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sé á þessum stað í samskiptum. Ég vil skora á forseta að skoða það sem hér hefur gerst. Þetta er ekki lagi, herra forseti. Og eins og ég sagði: Þetta er ekki ásættanlegt fyrir þingið.