afsögn formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Virðulegi forseti. Ég er ágætisdæmi, held ég, um það hvernig er komið fram á annan hátt við konur en karla ef við tökum dæmi af siðareglumálinu sem var hérna fyrir nokkru. Ég verð var við það í hvert sinn sem ég labba upp tröppurnar frammi. Það er stórt skilti á rúðu þegar komið er upp tröppurnar þar sem stendur, með leyfi forseta:
„Fyrstu konurnar, brautryðjendurnir, verða auðvitað fyrir ýmsu hnjaski, aðeins vegna þess að þær eru konur – en slíkt má ekki setja fyrir sig. Þegar konum fjölgar á Alþingi Íslendinga hverfur það, að ráðist sé á þær sérstaklega af því, að þær eru konur.“
Svo sagði Ingibjörg H. Bjarnason og þessi orð eiga enn við. Þau hurfu ekki, orðin hurfu ekki og árásirnar hurfu ekki.