afsögn formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Virðulegur forseti. Ég vil bara að það komi skýrt fram að ég er að mótmæla ákveðnu athæfi hér, þ.e. að persóna mín sé linnulaust gerð að einhverju aðalatriði þegar nefndin reynir að sinna eftirlitshlutverki sínu. Ég tek ekki þátt í því. Ég býð ekki upp á það. Ég býð ekki upp á þetta skálkaskjól. Ég býð ekki upp á að meiri hlutinn hafi eitthvert skjól í því að níða mig og mína persónu til að forðast að sinna eftirlitshlutverki nefndarinnar. Ég vil bara að það sé alveg skýrt að það er til þess að mótmæla þessari aðferðafræði, og sýna fram á það að þessi nefnd og störf hennar eru miklu mikilvægari en sú sem hér stendur, sem ég geng frá þessu embætti í mótmælaskyni og megi þeir sem urðu til þess hafa skömm fyrir. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)