yfirvofandi verkfall hjúkrunarfræðinga.
Virðulegi forseti. Á miðnætti var dregið verulega úr ferðatakmörkunum fólks þannig að farþegar sem koma hingað til lands hafa val á milli þess að fara í skimun eða í tveggja vikna sóttkví. Verklagið verður endurskoðað að tveimur vikum liðnum, að mér skilst, sem er bara mjög fínt. Ráðamönnum verður þó áfram tíðrætt um að mikilvægast sé að gæta áfram að heilbrigðissjónarmiðum og hlúa að heilbrigðiskerfinu og því er ég innilega sammála. Það er þó ein ógn sem landlæknir hefur sagt að muni setja skimanir í uppnám og það er yfirvofandi verkfall hjúkrunarfræðinga. Síðustu kjarabaráttu þeirra lauk fyrir fimm árum með lagasetningu og gerðardómi og nú stöndum við í sömu sporum. Ekki hefur tekist að semja við hjúkrunarfræðinga og búið er að boða verkfall á ný eftir fáeina daga. Í fréttum í vikunni mátti skynja ákveðinn tón um að hjúkrunarfræðingar mættu bara missa sín þegar kemur að því að sinna verklagi við töku sýna vegna Covid. Aðrir geta alveg sinnt þessu, sagði einhver. Svo eru orð hjúkrunarfræðinga sem tjá sig um störf sín tekin algerlega úr samhengi. Við vitum það öll að það voru hjúkrunarfræðingar ásamt öðru heilbrigðisstarfsfólki sem báru þungann af sýnatökum auk þess að sinna skipulagi og verkefnastjórn innan Landspítala og á heilsugæslunni þegar Covid reið yfir þjóðina. Þetta finnst okkur í Viðreisn vera köld skilaboð til framvarðarsveitar okkar.
Fyrir fimm árum upp á dag, 15. júní 2015, stóð hæstv. forsætisráðherra í þessari sömu pontu, þá í minni hluta. Þá höfðu verið sett lög á verkfall hjúkrunarfræðinga. Hæstv. forsætisráðherra spurði þáverandi forsætisráðherra hvaða útspil stjórnvöld gætu sett fram til að koma betur til móts við kröfur hjúkrunarfræðinga. Þar talaði þingmaðurinn Katrín Jakobsdóttir um að skapa þyrfti viðvarandi vinnufrið innan heilbrigðiskerfisins.
Mig langar því, herra forseti, til að gera orð hv. þm. Katrínar Jakobsdóttur að mínum og spyrja: Hvert verður framlag stjórnvalda til að leysa þennan brýna vanda heilbrigðisstofnananna?