150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

yfirvofandi verkfall hjúkrunarfræðinga.

[15:21]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að gera að umtalsefni kjör hjúkrunarfræðinga og þá kjaradeilu sem þar stendur yfir. Ég vil fyrst segja: Ég held að enginn af hálfu ríkisstjórnar hafi talað þannig að það megi skilja sem svo að hjúkrunarfræðingar megi missa sín. Ég veit í hvaða orð hv. þingmaður er að vísa og ég tel að þau hafi verið óheppileg. Ég held að við séum öll sem höldum utan um skimanir á landamærum mjög meðvituð um mikilvægt hlutverk hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta sem koma að þeim málum, bara svo að það sé sagt hér í upphafi. Það má ekki skilja þessi orð sem svo.

Í dag var samningafundur og það er vika til stefnu til að ná kjarasamningum áður en til verkfalls kemur. Ég vonast að sjálfsögðu til þess að aðilar nái saman fyrir þann tíma. Það snýst ekki bara um skimanir á landamærum, sem eru algjört aukaatriði í þessu, heldur snýst það um heilbrigðiskerfið okkar. Skrifað var undir samning fyrr á þessu ári sem var naumlega felldur í atkvæðagreiðslu. Og af því að hv. þingmaður spyr um það sem ég nefndi hér fyrir fimm árum þá held ég að gríðarmiklar framfarir hafi orðið, m.a. í þeim samningum sem þegar hafa náðst, og ekki síst hvað varðar kjör vaktavinnuhópa. Ég held að hv. þingmaður hljóti að vera mér sammála um að sú kerfisbreyting sem nú þegar hefur gengið í gildi, til að mynda í samningum við aðrar heilbrigðisstéttir, sem snýst um að létta álagi á vaktavinnufólk, sé ein stærsta kerfisbreyting þegar kemur að vinnutíma heilbrigðisstarfsfólks sem taka þarf vaktir í áratugi. Sömuleiðis voru í þessum samningum mörg önnur framfaramál. En eins og fram hefur komið í fjölmiðlum (Forseti hringir.) er það enn þá launaliðurinn sem stendur út af og þar hafa samninganefndirnar viku til stefnu til að ná samningum.