150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

yfirvofandi verkfall hjúkrunarfræðinga.

[15:24]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Við erum meðvitað að taka ákveðna áhættu með því að opna á innflæði fólks til landsins á ný, meðvituð um að kjarabarátta hjúkrunarfræðinga stendur yfir. Hún er harðari en nokkru sinni áður og mun ná hámarki á næstu dögum með boðuðu verkfalli. Við erum meðvituð um að komi bakslag geti það haft veruleg áhrif í haust, bæði efnahagslega og ekki síður út frá heilbrigðissjónarmiðum. Hér skiptir útfærslan því öllu máli, að sviðsmyndir liggi fyrir, að til sé plan. Mér finnst það óljóst. Það virðist vera að einhvers konar mynstur sé að dragast upp. Sjálfstæðisflokkurinn, sem var líka í fjármálaráðuneytinu fyrir fimm árum, getur ekki komið á samningi við jafn stóra og mikilvæga kvennastétt og hjúkrunarfræðinga.

Ég spyr forsætisráðherra: Er ekki kominn tími á að hæstv. forsætisráðherra taki forystu um málið og beiti sér af fullum krafti í ljósi sögunnar fyrir því að kjör kvennastéttar séu leiðrétt? Ég vil minna hana á þá tillögu sem samþykkt var af okkur í Viðreisn þess efnis að ríkisstjórnin ætti að hafa forystu um að bæta kjör kvennastétta. Það er kominn tími til að við sjáum forystu ríkisstjórnar í þeim málum.