yfirvofandi verkfall hjúkrunarfræðinga.
Herra forseti. Hér náðust samningar fyrir nokkrum vikum eða mánuðum við aðildarfélög BSRB, stórar kvennastéttir. Ég nefni til að mynda sjúkraliða, sem er önnur gríðarlega mikilvæg heilbrigðisstétt og mikil kvennastétt. Raunar hefur samningum verið lokið við meginþorra stéttarfélaga af hálfu ríkisins, eða um 80% ríkisstarfsmanna. Þar af eru allmargar kvennastéttir, enda eru ríkisstarfsmenn að meiri hluta konur. Ég held hins vegar að hv. þingmaður ætti ekki að gera lítið úr því þegar raunverulegum kerfisbreytingum innan kjarasamninga er náð, eins og breytingum á vaktavinnufyrirkomulagi, sem ég tel mikilvægustu breytingarnar sem við sjáum í þessum samningum. Hún snýst um lífskjör, um vinnutíma og um lífsgæði þeirra sem þurfa að standa vaktina. En auðvitað verður alltaf flókið mál að ná kjarasamningum. Það vita þeir sem setið hafa við samningaborðið, ekki síst þegar við erum að vinna innan leiðarljóss lífskjarasamninganna, eins og við höfum gert í öllum okkar kjarasamningum.