150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

opnun landamæra.

[15:26]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Stjórnvöld tala um að nú sé verið að opna landamærin. Ef verið er að opna þau núna hljóta þau eðli málsins samkvæmt að hafa verið lokuð áður, eða hvað? Er það bara misskilningur að halda að landið hafi verið lokað nema fyrir þá sem hingað komu í brýnum erindum vegna vinnu? Hér höfum við íslensk stjórnvöld, sem virðast hvorki vita hvort þau eru að koma eða fara. Þau mæta sjálfum sér í dyrunum, segja að nú sé verið að opna landamærin. En þau voru aldrei lokuð, eða hvað?

Mig langar til að velta því upp í ljósi þessa: Hvernig stóð á því að hópur kórónuveirusýktra rúmenskra glæpamanna slapp inn í landið þar sem hann lék lausum hala dögum saman? 16 íslenskir lögreglumenn liggja óvígir eftir í sóttkví næstu tvær vikur. Tveir leigubílstjórar munu sömuleiðis hafa þurft að fara í sóttkví. Við vitum ekkert hvert þessir einstaklingar hafa farið, hverja þeir hafa hitt. Við vitum ekkert um hvort þeir hafa verið að smita fólk hér í marga daga. Hvaða upplýsingar gaf þetta fólk t.d. við komuna til landsins? Þurfti það ekki gefa neinar upplýsingar? Rúmenía er ekki í Schengen. Hvers vegna virkaði ekki það sem maður skyldi ætla að væri eftirlitskerfi Schengen? Var engin landamæralögregla til að skoða pappíra þessa fólks, eða hvaða pappírum þurfti það að framvísa? Engum? Eða vegabréfum, vottorðum um að það væri komið hingað til að starfa?

Virðulegi forseti. Ég vil að opinber rannsókn fari fram á þessu máli og það verði krufið til mergjar hvað hafi eiginlega gerst og hvað hafi misfarist í þessu tiltekna máli. Trúverðugleiki okkar er í húfi, nú þegar við erum að reyna að feta veginn að eðlilegu ástandi.

Ég spyr því hæstv. dómsmálaráðherra: Veit hún hvað fór úrskeiðis og hvers vegna? Hyggst dómsmálaráðherra beita sér fyrir því að þetta mál, hvernig Rúmenarnir komust inn í landið og hvernig þeir léku lausum hala eins og raun ber vitni, verði rannsakað í kjölinn?