150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

opnun landamæra.

[15:29]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég held að þetta sé nú ekki alveg jafn óskýrt og hv. þingmaður vill vera láta. Landið var ekki lokað en við erum að opna það meira með því að bjóða upp á skimun. Það er varla hægt að halda því fram að landið sé mjög opið ef skilyrði við komu er að fara í 14 daga sóttkví. Það er alla vega ekki opið fyrir ferðamenn sem vilja dvelja hér á landi skemur en tvær vikur. Hér er talað um að við séum að opna landið meira af því að við bjóðum bæði Íslendingum og öðrum sem hingað koma upp á skimun og að fólk geti þá komið hingað með frjálsara lagi en áður var.

Hv. þingmaður beinir sjónum sínum að því máli sem upp kom. Það er rétt, Rúmenía er ekki í Schengen, en mennirnir komu heldur ekki þaðan. Þeir ferðamenn sem eru frá öðrum svæðum koma hingað frá löndum innan Schengen-svæðisins. Auðvitað er þetta athugað eins og hjá öðrum. Því var beint til mannanna að fara í sóttkví og það er skylda, en þær reglur voru brotnar. Nú fer fram smitrakning í þessu einstaka máli og verður kannað hvort aðrir þurfi að fara í sóttkví vegna þeirra.

En af því að skimunin hófst í dag þá varð einnig breyting á utanumhaldi á forskráningunni á þeim sem koma hingað til lands. Nú fara upplýsingar um farþega beint í smitrakningargagnagrunninn svokallaða. Þá eru miklu ítarlegri upplýsingar um þá sem hingað koma, bæði þá sem velja að fara í sóttkví og þá sem velja að tekið sé sýni, þannig að þessi breyting á heimildum er einnig skýrari nú, að vísa þeim frá sem ekki virða það að fara í sóttkví, þ.e. þeim sem kosið hafa í sóttkví fremur en skimun en virða það síðan ekki þegar þeir eru komnir til landsins. En lögreglan mun hafa eftirlit með því hvort reglum um sóttkví sé fylgt eða ekki og einnig mun rakningarteymi hringja í alla aðila og athuga hvort viðkomandi fylgi þeim reglum. Svo mun tíminn leiða í ljós (Forseti hringir.) til hvaða ráðstafana gæti þurft að grípa.

Við erum að fara mikilvæga leið. Við skráum betur og höfum meira utanumhald en um helgina. En ég sé ekki að (Forseti hringir.) eitthvað hafi farið sérstaklega úrskeiðis í þessu máli. Það er auðvitað mjög alvarlegt að framlínustarfsmenn okkar, (Forseti hringir.) stór hluti lögreglunnar á Suðurlandi, sé nú í sóttkví. En við því verður brugðist (Forseti hringir.) og ég hef átt samtal við lögreglustjóra um það.