opnun landamæra.
Virðulegi forseti. Já, þeir sem koma og ferðast innan Schengen-svæðisins hafa getað gert það. Við höfum aldrei lokað okkar innri landamærum eins og mörg lönd hafa gert, heldur beindum við nýlega, þegar kúrfan fór að fara niður, þeim tilmælum til allra sem hingað komu og settum það sem skilyrði að fólk færi í 14 daga sóttkví. Á þeim grunni komu þessir aðilar hingað innan svæðisins sem er opið, þeir ætluðu að fara í sóttkví en gerðu það ekki og þess vegna var gripið til þeirra ráðstafana sem fólk hefur séð.
Við erum hluti af alþjóðlegu umhverfi. Við búum við að hingað kemur fólk frá öðrum löndum. Við viljum það og eigum að bera virðingu fyrir því. Nú bjóðum við aðila velkomna. Frelsi einstaklingsins er auðvitað hluti af lýðræðislegu samfélagi og við treystum hvert öðru. En auðvitað geta komið upp einstök mál og þá verðum við að bregðast við þeim. En það þýðir ekki (Forseti hringir.) að við eigum að loka landamærum að nýju heldur stefna að því að afnema allar þær takmarkanir sem eru, ásamt því að gæta að sóttvörnum og því (Forseti hringir.) sem við höfum náð fram með því að hindra útbreiðslu veirunnar.