framkvæmdir í Helguvík.
Herra forseti. Fyrir skömmu stóð Miðflokkurinn fyrir sérstakri umræðu hér í þinginu um varnartengdar framkvæmdir á Suðurnesjum. Tilefnið var frétt þess efnis að utanríkisráðherra hefði lagt til í ráðherranefnd um ríkisfjármál að tæpum 1,5 milljörðum kr. yrði varið til endurbóta á hafnaraðstöðunni í Helguvík og framkvæmdum upp á 300 millj. kr. við gistirými á öryggissvæðinu í Keflavík yrði flýtt. Tillögu ráðherra var hafnað. Ég vil grípa aðeins niður í ræðu ráðherra sem var ágæt, með leyfi forseta:
„Öryggi Íslands sem herlausrar þjóðar verður ekki tryggt nema með virkri þátttöku í Atlantshafsbandalaginu og með varnarsamningnum við Bandaríkin. Það er með þetta að leiðarljósi sem ég hef vakið máls á frekari framkvæmdum við öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli, þar með talið í Helguvík. Uppsöfnuð þörf fyrir viðhald og endurbætur er mikil og nú er rétti tíminn til að ráðast í slík verkefni að mínu mati, enda er gert ráð fyrir að stærstur hluti þessara verkefna sé fjármagnaður af okkar bandamönnum. Íslendingar geta ekki ætlast til að bandalagsríki standi við sínar skuldbindingar ef við tryggjum ekki lágmarksforsendur til þess.“
Þetta sagði hæstv. ráðherra í sérstakri umræðu. Í þeirri umræðu svaraði ráðherra því ekki hvert heildarumfang framkvæmdanna væri í krónum talið. Ég vil því biðja hæstv. ráðherra að upplýsa þingið hér með um það. Framlag Íslands liggur fyrir. Það er tæplega 1,5 milljarðar. Hvert er framlag NATO og okkar bandamanna, stærsti hlutinn, eins og ráðherra sagði í ræðu sinni?