framkvæmdir í Helguvík.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og sömuleiðis fyrir að lesa upp úr ræðu minni, sem mér fannst algerlega til fyrirmyndar og mér fyndist það bara góð regla að hér kæmu hv. þingmenn og læsu upp úr ræðum mínum. Ég er alveg hjartanlega sammála hv. þingmanni að þetta var prýðisræða.
En ég veit eiginlega ekki, virðulegi forseti, á þessu stigi hverju ég get bætt við öðru en því sem hv. þingmaður, og ég er ekkert að gera grín að því, dró upp, sem voru aðalatriði málsins. Varðandi einstök framkvæmdaratriði þegar að þessum málum kemur þá getum við sagt að hér er um það að ræða að á Íslandi eru mörg varnarmannvirki, vel yfir 100, sem hafa að stórum eða stærstum hluta verið fjármögnuð af Atlantshafsbandalaginu og í tengslum við tvíhliða varnarsamninginn við Bandaríkin. Eins og hv. þingmaður lagði upp með þarf að viðhalda þeim eins og öðrum og það hefur ekki verið neitt viðhald á þessum mannvirkjum í mjög langan tíma. En sem betur fer sjáum við meira viðhald en við höfum séð í áratugi. Hér erum við að tala um bara þegar kemur að öryggissvæðinu, og hv. þingmaður verður að fyrirgefa að ég er ekki með þessar tölur fyrir framan mig, kannski 12–14 milljarða kr., eitthvað slíkt. Við erum líka lánsöm að því leyti að þó svo að það sé rétt að ekki eigi að blanda saman efnahagsmálum og varnar- og öryggismálum þá breytir það því ekki að það er betra fyrir okkur að verið sé að fara í þessi verkefni núna en á þenslutíma.
En við tókum um þetta, ef ég man rétt, virðulegur forseti, sérstaka umræðu. Þar reyndi ég að svara þeim fyrirspurnum sem til mín var beint. Ef menn vilja fara eitthvað nánar í það þá fagna ég því og ég fagna því að við gerum það í þingsal. En stóra myndin er þessi, eins og hv. þingmaður dró fram, að það er kominn tími á viðhald á ýmsum (Forseti hringir.) varnarmannvirkjum.