framkvæmdir í Helguvík.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég vil, með leyfi forseta, grípa niður í ræðu hæstv. ráðherra í sérstöku umræðunni þar sem hann segir um umræddar framkvæmdir:
„Þær eru allar í fullu samræmi við þjóðaröryggisstefnuna sem kveður á um að tryggja skuli að í landinu séu til staðar varnarmannvirki til að mæta þeim áskorunum sem Ísland stendur frammi fyrir í öryggis- og varnarmálum og til að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.“
Hæstv. ráðherra hefur upplýst að framkvæmdirnar séu í fullu samræmi við þjóðaröryggisstefnuna. Framkvæmdunum var hins vegar hafnað í ráðherranefndinni. Ríkisstjórnin hefur skuldbundið sig til að fara eftir þjóðaröryggisstefnunni. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir, með leyfi forseta:
„Ríkisstjórnin leggur áherslu á að öryggismál þjóðarinnar séu í traustum skorðum. Þjóðaröryggisstefna Íslands sem samþykkt var af Alþingi verður höfð að leiðarljósi.“
Augljóst er að með því að hafna tillögu ráðherra er ekki verið að fara eftir þjóðaröryggisstefnunni, sem er alvarlegt mál, og ekki verið að fara eftir stjórnarsáttmálanum. (Forseti hringir.) Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Eru öryggismál þjóðarinnar í traustum skorðum þegar ríkisstjórnin hafnar tillögu utanríkisráðherra og fer ekki eftir þjóðaröryggisstefnunni?