framkvæmdir í Helguvík.
Virðulegi forseti. Til að svara hv. þingmanni hvort ríkisstjórnin sé að framfylgja þjóðaröryggisstefnu þá er svarið einfalt: Já. Auðvitað eru ekki skrifuð niður í þjóðaröryggisstefnuna einstök mannvirki eða viðhald á þeim eða slíkt en ef við notum þann mælikvarða á tíma hvaða ríkisstjórnar mest hefur verið farið í að viðhalda varnarmannvirkjum þá stendur þessi ríkisstjórn algerlega upp úr og er ekki mikil samkeppni á undanförnum áratugum.
Hins vegar liggur það alveg fyrir, eins og hv. þingmaður dró fram og það sér það hver maður, með mikið af þessum varnarmannvirkjum, sem eru svo sannarlega líka notuð, og okkur finnst algerlega sjálfsagt, til borgaralegra verkefna, hvort sem það eru hafnir eða ljósleiðari eða hvað annað, að það er komin viðhaldsþörf sem betur hefur verið brugðist við eins og ég nefndi. En það liggur alveg fyrir að (Forseti hringir.) þessi mannvirki eru nákvæmlega eins og öll önnur, ef þeim er ekki haldið við þá safnast upp viðhaldsþörf.