150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

aðgerðir gegn atvinnuleysi.

[15:41]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Eitt stærsta vandamál Íslands nú er atvinnuleysi, atvinnuleysi og aftur atvinnuleysi. Það vekur furðu að ráðherrar og fjölmiðlar ræði ekki þessa vá oftar og ítarlegar. Erlendis er oft talað um hversu mörg störf ríkisstjórnir skapa eða tapa með efnahagsstefnu sinni. Á vakt þessarar ríkisstjórnar hafa nú tapast um 15.000 störf en nánast ekkert starf skapast á móti. 20.000 Íslendingar til viðbótar hafa tapað hluta af starfi sínu. Svona tölur hafa aldrei sést áður. Auðvitað er Covid meginorsökin en þeim mun meiri ástæða er til að ríkisstjórnin sýni í verki að ný störf séu sköpuð á móti þeim sem tapast. Af hverju setur ríkisstjórn forsætisráðherra þá 75% af öllum aðgerðum sínum í bara tvær aðgerðir, atvinnuleysisbætur og niðurgreiðslu á uppsögnum? Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Hvar eru störfin sem þessi ríkisstjórn hefur skapað? Hvar eru peningarnir sem fara í að búa til störf? Ég minni ráðherrann á að einungis 5% af aðgerðum hennar renna í nýsköpun.

Í upphafi þessarar kreppu stakk ég upp á að við myndum fjölga opinberum störfum eins og allar aðrar þjóðir gera nú og hafa gert í kreppu. Þeirri hugmynd var lýst sem verstu hugmynd allra tíma af fjármálaráðherra, sem hæstv. forsætisráðherra lýsti orðrétt sem besta samstarfsmanni sem forsætisráðherra hefur nokkurn tíma haft. Ég spyr hæstv. ráðherra: Er hún sammála fjármálaráðherra um að við eigum alls ekki að fjölga opinberum störfum? Mjög skýr spurning.

Nú er einungis ein vika eftir af þinginu en haustið verður ömurlegt fyrir þær tugþúsundir einstaklinga sem detta niður í 290.000 kr. grunnatvinnuleysisbætur. Treystir ráðherra sér til að lifa á þeirri upphæð og ef ekki, af hverju (Forseti hringir.) felldi hún tillögu um hækkun bótanna? (Forseti hringir.) Frú ráðherra: Hvar eru nýju störfin?