150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

aðgerðir gegn atvinnuleysi.

[15:43]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina sem er áhugavert að greina. Hv. þingmaður kemur hér upp og segir: Á vakt þessarar ríkisstjórnar varð þetta atvinnuleysi til. Hann bætir svo við í aukasetningu: Að vísu kom heimsfaraldur sem er raunar að lama hagkerfi alls hins vestræna heims, en þetta var á vakt þessarar ríkisstjórnar. Það er kúnstugt, þykir mér, þegar hv. þingmaður talar með þessum hætti.

Hins vegar er ég sammála hv. þingmanni um að atvinnuleysið er okkar brýnasti vandi. Þar þarf að grípa til aðgerða og þar hefur svo sannarlega verið gripið til aðgerða. Hlutastarfaleið ríkisstjórnarinnar, sem u.þ.b. 36.000 manns nýttu sér þegar mest var, var auðvitað gríðarlega mikilvæg aðgerð til að viðhalda ráðningarsambandi og tryggja að færri misstu vinnuna. Það að styðja við fyrirtæki til að greiða laun í uppsagnarfresti og tryggja um leið kjör starfsfólksins hjá þeim fyrirtækjum meðan þau geta vonandi farið í gegnum hraða endurskipulagningu — og ég vonast til þess að frumvarpi hæstv. dómsmálaráðherra um fjárhagslega endurskipulagningu verði lokið fyrr en síðar á Alþingi til þess að það verði unnt — er líka önnur aðgerð sem er ætlað að koma atvinnulífinu hraðar í gang.

Svo virðist hv. þingmaður hafa gleymt 20 milljörðum í opinberar fjárfestingar á þessu ári. Ríkisstjórnin hefur sömuleiðis boðað að haldið verði áfram á sömu braut þar sem við erum að tala um fjárfestingar, vissulega í hefðbundnum geirum á borð við samgöngumannvirki en líka stórar fjárfestingar í grunnrannsóknum, tækniþróun og aukinn stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, sem hv. þingmaður gerir lítið úr. Það eru risastór skref sem hafa verið stigin á þessu kjörtímabili til að efla hér nýsköpun, bæði með auknum endurgreiðslum en líka með beinum stuðningi í gegnum nýsköpunarsjóðinn Kríu og Tækniþróunarsjóð. Allt mun þetta skapa störf og það verður á vakt þessarar ríkisstjórnar (Forseti hringir.) sem við munum sjá þessarar atvinnuleysistölur minnka. Þær eru þegar farnar að minnka og það skiptir miklu máli hvernig við (Forseti hringir.) höldum á spilunum til að þær geti haldið áfram að minnka.