150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

aðgerðir gegn atvinnuleysi.

[15:47]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég er algjörlega ósammála hv. þingmanni um samlíkingu hans við bankahrunið. Við erum stödd á allt öðrum stað og þessi kreppa er allt annars eðlis. Ég hefði haldið að hv. þingmaður hefði skilning á því þar sem hann sat nú á þessu þingi í aðdraganda efnahagshrunsins og veit nákvæmlega af hverju ráðist var í þá rannsókn. Hér er hins vegar um að ræða bráðaaðgerðir til að bregðast við fullkomlega ófyrirsjáanlegum kringumstæðum sem enginn sá fyrir nema kannski hv. þingmenn Samfylkingarinnar, ég skal ekki segja til um það. Þar erum við að ráðast í aðgerðir sem eru annars vegar til skemmri tíma og ekki eingöngu á þessu ári, eins og fram kom; 20 milljarðar í fjárfestingu bættust við opinbera fjárfestingu sem komin var upp í 74 milljarða fyrir þessar aðstæður, sem ekki var vanþörf á.

Þannig að þegar hv. þingmaður kemur í fyrri fyrirspurn með hugmyndir um að við stöndum í vegi fyrir því að nýta opinbera fjármuni, bæði til að efla hið opinbera en líka að hvetja til atvinnusköpunar í einkageiranum, þá er það bara rangt. (Forseti hringir.) Það er rangt. Stóra verkefnið er einmitt að draga úr atvinnuleysi og allt það sem við höfum verið að gera (Forseti hringir.) miðar að því. Það þarf bæði að grípa til bráðaaðgerða og langtímaaðgerða, (Forseti hringir.) eins og að byggja upp nýsköpun, og ég hefði haldið að þar værum við hv. þingmaður sammála.