kjaradeila hjúkrunarfræðinga.
Forseti. Við gátum treyst hjúkrunarfræðingum til að standa með okkur við að ná tökum á faraldrinum, þrátt fyrir að starfsaðstæður þeirra séu það slæmar að fjöldi hjúkrunarfræðinga starfar ekki sem slíkur. Núna þurfum við að treysta hjúkrunarfræðingum, að þeir séu áfram tilbúnir að setja sig í hættu fyrir okkur, eftir að landið var opnað í dag. Með fleira hjúkrunarfólk í framlínunni er öruggara að opna landið og fá fleiri ferðamenn. Með fleira hjúkrunarfólk í framlínunni kostar minna að fletja kúrfuna ef Covid blossar aftur upp. Það er þjóðhagslega hagkvæmt og þjóðaröryggismál að hafa fleiri hjúkrunarfræðinga í framlínunni.
Það er skortur á starfandi hjúkrunarfræðingum og hann var fyrirséður. Hjúkrunarfræðingar hafa verið samningslausir í 15 mánuði. Eftir sjö ár án þess að fá ásættanlegan kjarasamning, eftir fimm ár frá lögum sem bönnuðu verkfall þeirra svo 10% sögðu upp, eftir þrjú ár undir samningi sem gerðardómur þvingaði upp á þá og eftir að hafa sett sig í hættu í framlínunni í Covid, við að kveða niður Covid-faraldurinn, sáu hjúkrunarfræðingar sig tilneydda til að fara í verkfall. Þetta er skammarleg staða, þ.e. ef þeim er ekki boðinn samningur sem þeir geta samþykkt.
Það eru þrjár leiðir í stöðunni, farsæl leið, glannaleg leið og stórhættuleg leið. Farsæla leiðin er að afstýra verkfallinu með samningum sem hjúkrunarfræðingar geta samþykkt og fá þá fleiri strax í framlínu, af því að það er nóg af menntuðum hjúkrunarfræðingum í landinu. Glannalega leiðin er að leyfa verkfallinu að skella á og semja svo og hættulega leiðin er að setja aftur lög sem banna verkfall hjúkrunarfræðinga með fyrirséðum flótta úr stéttinni. Katrín Jakobsdóttir, hæstv. forsætisráðherra, getur kannski ekki þvingað Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra til þess að semja en þetta verðum við að fá að vita: Var hún búin að binda sig og Vinstri græn til að samþykkja lög á verkföll, (Forseti hringir.) m.a. hjúkrunarfræðinga, ef fjármálaráðherra neitar að bjóða samninga sem hjúkrunarfræðingar geta samþykkt? Þetta verðum við að vita.