150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

kjaradeila hjúkrunarfræðinga.

[15:53]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Þetta var svona „næstum því“ svar. Hæstv. forsætisráðherra benti mér á að skoða að það hefðu ekki verið sett nein lög á verkföll í tíð hennar og ég ætti kannski að lesa úr því hver viljinn sé. Þetta var svona „næstum því“ svar. Það væri samt frábært að fá alvörusvar.

Það er þá í rauninni bara verið að segja landsmönnum hvað felst í stjórnarsáttmálanum og þetta myndi þá ekki felast í því. Það er alveg hægt að svara því, ef þú setur það skýrt á borðið þannig að fjármálaráðherra sjái að hann hafi ekki það vopn í farteskinu að geta barið hjúkrunarfræðinga aftur til hlýðni og undir gerðardóm og verði að semja, alveg eins og hjúkrunarfræðingar verða að semja. Þá er það bara skýrt og liggur á borðinu.

Varðandi lífskjarasamninginn verð ég að benda hæstv. forsætisráðherra á það að formaður VR, stærsta verkalýðsfélagsins, og stjórnin, hefur verið alveg skýr: Betri árangur annarra mun ekki hafa áhrif á endurskoðun okkar í haust á lífskjarasamningnum. Þetta er alveg skýrt hjá Ragnari Þór Ingólfssyni, (Forseti hringir.) að lífskjarasamningurinn er ekki þarna undir. Það er launaliðurinn (Forseti hringir.) sem stendur út af, það er það sem þarf að laga og (Forseti hringir.) samninganefnd ríkisins vantar umboð. (Forseti hringir.) Ég veit að forsætisráðherra getur ekki aukið umboð þar af því að hæstv. fjármálaráðherra fer með valdið (Forseti hringir.) en hún getur sagt (Forseti hringir.) að hún muni ekki taka þátt í að setja lög á verkföll. (Forseti hringir.) Hún getur alla vega sagt að hún ætli ekki að taka þátt í því. (Forseti hringir.)