kjaradeila hjúkrunarfræðinga.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Alveg eins og við leggjum mat á svör hvert annars þá leggjum við líka mat á spurningarnar. Ég get staðfest það sem raunar hefur komið fram áður hjá mér að það hefur ekki komið til tals að setja lög á hugsanlegar verkfallsaðgerðir fremur en aðrar þær verkfallsaðgerðir sem áður hafa verið til umræðu á þessu kjörtímabili. Það hefur ekki einu sinni verið rætt.
Þetta mál hvað varðar samninga við heilbrigðisstéttir er auðvitað margslungið og ég vil nefna sérstaklega, því að hv. þingmaður nefndi skort, að mikilvægar gleðifréttir komu í síðustu viku þegar tilkynnt var um þá ákvörðun heilbrigðis- og menntamálaráðherra að námsplássum í hjúkrunarfræði yrði fjölgað um 40, bæði í Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands, og sömuleiðis er að fara af stað nýtt nám á fagháskólastigi fyrir sjúkraliða sem ég held að sé mikið gleðiefni. Þetta er allt samhangandi samhengi þegar við erum að tala um starfsaðstæður og kjör, hvernig við búum að menntunarmálum ólíkra stétta, hvernig við búum til að mynda að því sem ég nefndi í fyrra svari (Forseti hringir.) um vinnutíma og síðan að sjálfsögðu launin. Ég ítreka það hins vegar (Forseti hringir.) að samninganefnd ríkisins er algjörlega einbeitt í því verkefni eins og (Forseti hringir.) samninganefnd hjúkrunarfræðinga að reyna að ná saman á þeirri viku sem er fram undan. (Forseti hringir.)