150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

hlutdeildarlán.

[15:56]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Mig langar að bera upp spurningu til hæstv. félags- og barnamálaráðherra varðandi hlutdeildarlánin. Það mál er nú til umræðu og í nefnd. Áhyggjur mínar lúta því að íbúar, lágtekjufólk, í veikari byggðum landsbyggðarinnar þar sem ekki lítur út fyrir að byggt verði nýtt húsnæði, standi ekki jafnfætis tekjulágu fólki sem hefur aðgang að þessu úrræði, sem er vissulega mjög gott og þarft, að ríkið taki þátt í fyrstu kaupum. Það eykur möguleika tekjulágra fjölskyldna til að eignast eigið húsnæði og kemur sér vel fyrir ungt og tekjulágt fólk.

En áhyggjur mínar eru þær að þar sem hlutdeildarlán eru bundin við nýbyggingar verði ekki sá möguleiki að fjárfesta í nýbyggingu á mörgum svæðum úti um allt land þar sem trúlega er ekki mikill grundvöllur fyrir því að fara að byggja slíkt húsnæði eða að viðkomandi einstaklingar hafi að eigin frumkvæði burði til þess að byggja sjálfir. Ég vildi gjarnan að það yrði skoðað í nefndinni að eitthvert ákveðið hlutfall væri til þessara svæða, hugsanlega eftir byggðakorti sem Byggðastofnun hefði yfir að ráða, eða hækka hlutfallið af lánum sem veitt væru á þessum svæðum.

Mér finnst að gæta verði jafnræðis hjá tekjulágu fólki, hvar sem það býr í landinu, gagnvart þessu úrræði, sem er vissulega mjög gott og þarft og er hluti af lífskjarasamningum.