hlutdeildarlán.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur fyrir þessa fyrirspurn. Við deilum þeirri sýn að almennt hafa aðgerðir í húsnæðismálum ekki beinst nægilega mikið að landsbyggðinni. Varðandi hlutdeildarlánin þá segi ég það í upphafi að ef þingmaðurinn eða nefndin vill skerpa á þessum lögum gagnvart landsbyggðinni er félagsmálaráðherra sá fyrsti sem mun styðja slíkt.
Hins vegar held ég að samhliða því verði að skoða þetta, og ég hvet nefndina til þess að gera það, í samhengi við aðrar þær aðgerðir sem við höfum verið að ráðast í, sérstaklega gagnvart landsbyggðinni núna á síðasta árinu, skulum við segja. Við settum af stað aðgerðir sem fólu m.a. í sér að setja hærri framlög í almenna íbúðakerfið sem kemur að uppbyggingu almennra íbúða úti á landi, vegna þess að það vantaði inn í það frumvarp á sínum tíma sérstakt leigufélag gagnvart landsbyggðinni, og líka sérstök landsbyggðarlán sem sérstaklega voru ætluð til uppbyggingar úti á landi, þegar fjármálastofnanir hefðu hafnað uppbyggingu á þeirri forsendu að þetta væri kalt svæði eða markaðsverð væri lægra en byggingarkostnaður.
Það er gaman frá því að segja að þessi lán hafa komið hreyfingu á markaðinn og uppbyggingu úti á landi. Ég held að það séu á bilinu 70–80 íbúðir sem búið er að byggja á grundvelli þessara lána. Annað eins er í pípunum og ég heyri að þetta er að koma af stað uppbyggingu allt í kringum landið. Þá geta hlutdeildarlánin komið samhliða slíkum lánveitingum. Þannig að um leið og ég segi að ég sé mjög jákvæður fyrir því að nefndin skoði hvort heldur hærra hlutfall til ákveðinna svæða eða að eyrnamerkja eða eitthvað slíkt, þá er ég ekki endilega viss um að það sé flöskuhálsinn vegna þess að ég hef trú á því að samspil annarra aðgerða, sem við höfum verið að ráðast í, við hlutdeildarlánin muni gera það að verkum að hlutdeildarlán muni renna til uppbyggingar úti á landi eins og á höfuðborgarsvæðinu.
En svo ég ítreki það; ráðherrann er ekki mótfallinn því heldur þvert á móti mjög fylgjandi því að skerpt sé á aðgerðum gagnvart landsbyggðinni í húsnæðismálum og að það verði gert í þessu frumvarpi sem og öðrum sem tengjast húsnæðismálum.