hlutdeildarlán.
Herra forseti. Það er gott að ráðherra sé bjartsýnn á að önnur úrræði sem sett hafa verið í gang, leiguíbúðir og svokölluð landsbyggðarlán, sem ég veit nú ekki alveg hvort komin er mikil reynsla á eða hverjum býðst enn sem komið er, geti spilað saman. Það þyrfti þá að skýra enn frekar þá möguleika, finnst mér, í greinargerð og í vinnu nefndarinnar hvernig það gæti gerst. En ég er að tala um þau svæði sem ekki hefur verið byggt á í mörg ár, og íbúa sem búa þar sem hafa áhuga á að kaupa eldra húsnæði því að þeir sjá ekki fram á að byggt verði húsnæði, hvort sem er í almenna leiguíbúðakerfinu eða með hjálp hlutdeildarlána. Að þeir hafi möguleika á að festa kaup á eldra húsnæði og búa á þeim stað sem þeir vilja búa á til framtíðar en fari ekki að sogast á þéttbýlisstaði á þessum forsendum. Það væri mjög slæm þróun.