hlutdeildarlán.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að þetta má ekki verða til þess að fólk sogist af landsbyggðinni til höfuðborgarinnar. Þar spila landsbyggðarlánin inn í og búið er að byggja fyrir þau í öllum kjördæmum, allt í kringum landið núna síðasta árið. Við eigum líka að gæta þess að við segjum ekki við landsbyggðina að við ætlum ekki að brúa bilið þannig að það verði ekki byggt. Við þurfum að hugsa að það séu hvatar til þess að þar verði byggt vegna þess að við viljum að meira sé byggt úti á landi. Það er gaman að sjá að síðustu mánuði og á síðasta ári hefur verið byggt til að mynda á Ísafirði og Súðavík. Verið er að byggja húsnæði þar sem ekki hefur verið byggt í langan tíma, m.a. fyrir landsbyggðarlánin sem eru í boði ef menn fá höfnun hjá öðrum fjármálastofnunum. En um leið segi ég: Samspilið þarna á milli má sannarlega skoða og ég er talsmaður þess að gera allt sem hægt er til að styrkja landsbyggðina í sessi og að byggt sé upp allt í kringum landið, það er ekki bara mikilvægt gagnvart landsbyggðinni heldur er það þjóðhagslega mikilvægt. Ég hvet þingmanninn áfram í nefndinni og heiti því að vera til liðsinnis í þeim málum.