150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

afsögn formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

[16:05]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg):

Herra forseti. Sem femínisti hér á þingi verð ég að játa að það eru dapurleg tíðindi að heyra að þingkona skuli víkja sem nefndarformaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og mótmæla ákveðnu athæfi sem beinist gegn persónu hennar. Kvenþingmenn minni hlutans koma hér upp og tala um niðurlægjandi framkomu gegn konum. Mig langar að minna á d-lið 5. gr. siðareglna þingmanna sem þingmenn skrifuðu allir undir, þar sem hafnað er einelti og annarri vanvirðandi framkomu, og sömuleiðis 8. gr. siðareglnanna.

Ég hvet hæstv. forseta til að kafa ofan í þetta mál og hv. forsætisnefnd sömuleiðis. Það væri líka ágætt að heyra útskýringar karlkyns þingmanna meiri hlutans í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd um ástand mála og hvernig á þessu stendur og hvort þessar staðhæfingar fráfarandi formanns nefndarinnar eigi við einhver rök að styðjast. Það vantar inn í þessa umræðu. (Forseti hringir.) Ég óska eftir því að heyra það, hvort sem það er á þessum vettvangi eða öðrum.

Að öðru leyti hvet ég hæstv. forseta til að kafa ofan í þetta mál.