150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar atvinnufyrirtækja.

814. mál
[16:47]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Eins og fram kom hjá hv. framsögumanni álits meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar um þetta mál er ég í hópi þeirra þingmanna sem eru á málinu en þó með ákveðnum fyrirvara. Ég vildi fá að gera stuttlega grein fyrir sjónarmiðum að baki þeim fyrirvara.

Hér er um að ræða eitt þeirra mála sem hafa verið sérstaklega smíðuð til að bregðast við því þunga efnahagslega höggi sem fyrirtækin í landinu hafa orðið fyrir í kjölfar Covid-19 og þeirra aðgerða sem þurfti að grípa til vegna veirunnar. Þetta voru nauðsynlegar aðgerðir og nauðsynlegur liður í því að verjast þeirri vá sem veiran er en höfðu í för með sér miklar efnahagslegar afleiðingar. Þær aðstæður, svo maður segi hið augljósa, sem fyrirtækin í landinu hafa staðið frammi fyrir vegna Covid-19, hafa reynst mörgum þeirra afar þungbærar.

Markmiðið með frumvarpinu er verðugt og það er gott; að veita fyrirtækjum í landinu tímabundið skjól á meðan á þessu ástandi stendur og veita þeim um leið tækifæri til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Eins og ég segi, markmiðið er verðugt, en áhyggjuefnið er kannski fyrst og fremst það að erfitt er að spá fyrir um hverjar afleiðingar þess verða.

Við meðferð málsins í nefndinni var endurtekið stef að við óbreyttar aðstæður og án aðgerða stjórnvalda væri fjöldagjaldþrot fyrirtækja óumflýjanlegt. Við þekkjum auðvitað öll hvað gerist þá. Þá tapast verðmæti, glatast þekking og atvinnuleysi myndi aukast enn frekar. Þetta er því miður einfaldlega staðan. Þess vegna eru skilyrðin smíðuð eins og þau eru, og það styð ég, með það að leiðarljósi að grípa sem flest fyrirtæki í þessari stöðu, þ.e. fyrirtæki sem er í þessum mikla vanda vegna Covid-19. Það er mikilvægt atriði, þetta eru fyrirtæki sem eru illa stödd vegna þessa ástands.

Markmiðið hlýtur að vera, að mínu mati, fyrst við erum á annað borð að leggja upp í þennan björgunarleiðangur, að grípa sem flest fyrirtæki. Þess vegna var ég í hópi þeirra þingmanna sem lögðu á það áherslu við meðferð málsins að einyrkjar myndu líka falla hér undir. Ef markmiðið er að liðsinna fyrirtækjum og veita þennan björgunarhring þarf þetta úrræði að ná til allra þeirra sem við getum náð til sem eru í þessari stöðu vegna þessara aðstæðna. Það má ekki gleyma minnstu aðilunum eins og útlit var fyrir. Það er kannski ósanngjarnt að segja „gleyma“, það er ákveðið flækjustig þessu samfara, en ég gat ekki almennilega séð rökin fyrir því að einyrkjar, með þeirri útfærslu sem við leggjum hér til, ættu ekki að falla undir. Ég fagna þessari breytingu. Það er ákveðin forsenda fyrir stuðningi mínum að þetta skref hafi verið stigið.

Þetta er staðan sem við þekkjum öll, þessi sögulegi efnahagslegi skellur sem er ástæða þessarar aðgerðar. Það verður auðvitað ekki fram hjá því litið af hvaða ástæðu við erum í þeirri stöðu. Mér finnst ekki mega gleymast í umræðunni um þetta mál hverjar ástæðurnar fyrir þeirri aðgerð voru. Við munum eftir því núna og við þurfum að muna eftir því til framtíðar.

Áhyggjuefni er að ekki verður fram hjá því litið að sú leið sem hér er farin er til þess fallin að stuðla að ákveðinni réttaróvissu. Það gerir hún vegna þess að við víkjum hér frá þekktum reglum gjaldþrotaskiptaréttar og stígum inn í sambönd sem þegar hafa myndast. Það er alltaf óþægilegt og það er óþægilegt þegar lagasetning verður til með slíkum hraða. Gjaldþrotaskiptarétturinn á að baki langa dómaframkvæmd. Þar hefur orðið til fastmótuð framkvæmd. Það eru hættur því samfara að fikta í því gangverki eins og við erum að gera núna. Hættan er kannski sú að það eru einhverjar afleiðingar í þessu sem við sjáum einfaldlega ekki fyrir, spurningar sem munu vakna í dómaframkvæmd sem við sáum ekki fyrir. Það verður mögulega til einhver túlkun hjá dómstólum landsins sem við sáum ekki fyrir og gátum ekki séð fyrir. Fyrirvari minn við stuðninginn byggir ekki síst á því að við erum að breyta reglum ansi skarpt en við gerum það vegna þeirra aðstæðna sem hér eru uppi. Þeim er breytt af mikilvægri ástæðu og að höfðu mjög mikilvægu leiðarljósi en ég játa að af þessu hef ég ákveðnar áhyggjur.

Þær breytingar sem hafa orðið á frumvarpinu við meðferð málsins í nefndinni eru jákvæðar og til hins betra. Það er í fyrsta lagi atriðið sem ég nefndi áðan, að ná einyrkjunum hérna undir, mér finnst það vera réttlætisatriði og jafnræðissjónarmið. Ég myndi samhliða nefna að hér er verið að leggja til þá breytingu að samkvæmt ákvæði til bráðabirgða er heimild til lengingar á lánstíma eða frestunar á gjalddaga stytt úr þremur árum í 18 mánuði. Þetta er í mínum huga líka mjög mikilvæg breyting og ákveðin forsenda fyrir stuðningi. Þetta úrræði er tímabundið og það verður að vera tímabundið. Mér finnst við ná betra jafnvægi með því að tala fyrir 18 mánuðum frekar en þremur árum. Það skiptir í mínum huga miklu máli. Þessi nálgun er til þess fallin að feta þann milliveg að virða hagsmuni skuldarans sem er í erfiðri stöðu núna en víkja ekki algerlega til hliðar hagsmunum kröfuhafans. Hún er til þess fallin að draga úr hugsanlegri verðmætarýrnun á meðan á greiðsluskjólinu stendur en leysir ekki fyrirsjáanlegan vanda og óvissu að öllu leyti.

Ég nefni í fyrirvara mínum sjónarmið um samningsveðhafa. Í frumvarpinu er mælt fyrir um að samningsveðhafar muni ekki hafa áhrif á ákvarðanir sem varða fjárhagslega hagsmuni þeirra við nauðasamningsumleitanir. Upplifun mín er sú að þessi breyting geti stangast á við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins, númer hennar er tilgreint í fyrirvaranum og ég ætla að hlífa okkur við því að lesa það upp. Ég tel líklegt að þessi tilskipun verði tekin upp í EES-samninginn, einfaldlega vegna þess að félagaréttargerðir ESB hafa allar verið teknar upp í EES-samninginn. Hér er um að ræða efni sem varðar starfsemi fyrirtækja og skilyrði fyrir fjárhagslegri endurskipulagningu. Það er því ekki eingöngu í ljósi samspils milli hagsmuna kröfuhafa og skuldara að mikilvægt er að þetta úrræði sé tímabundið, það er líka tímabundið í ljósi þeirrar trúar minnar að tilskipunin verði tekin upp. Þegar hún verður innleidd má ætla að taka þurfi lög um gjaldþrotaskipti til heildstæðrar endurskoðunar.

Að teknu tilliti til markmiðs frumvarpsins, að teknu tilliti til þeirra breytinga sem hafa verið gerðar á málinu, styð ég það. En ég viðurkenni að valið var í mínum huga ekki alveg einfalt. Þetta er fremur kalt hagsmunamat. Mín niðurstaða og Viðreisnar varð sú að verðugt markmið og það þunga efnahagslega högg sem fyrirtæki landsins hafa orðið fyrir geri að verkum að þetta mál eigi að styðja. Þetta eru aðstæður sem komu okkur öllum, ekki bara á Íslandi heldur heimsbyggðinni allri, að óvörum og hafa veitt fyrirtækjum landsins þungt högg. Það er sumpart þyngra á Íslandi en annars staðar í ljósi þess hvað atvinnulíf okkar er einsleitt og ferðaþjónustan er ákveðin burðarstoð hjá okkur sem verður fyrir verulega þungu höggi. Þetta heggur fast í fyrirtæki sem stóðu traust fyrir og báru enga ábyrgð á því óveðri sem skall á.

Niðurstaðan er sú að þetta er eitt þeirra mála sem Viðreisn vill styðja til að geta dregið úr þessu höggi og til að geta komið fyrirtækjunum í tímabundið skjól á meðan á óveðrinu stendur. Við styðjum markmiðið um það að verja fyrirtækin með þessum hætti, verja störfin og verja þá um leið heimilin.