tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar atvinnufyrirtækja.
Virðulegi forseti. Ég þakka síðustu tveimur hv. þingmönnum fyrir að segja flest það sem ég myndi vilja segja um þetta, það eru helst kannski fyrirvararnir sem ég hef sem ég vil nefna. Ég er í allsherjar- og menntamálanefnd og ákvað að vera ekki með á nefndarálitinu vegna þess að ég þori það hreinlega ekki, ég er ekki viss um að afleiðingarnar af þessu frumvarpi séu nógu vel þekktar til að ég treysti mér til að leggja nafn mitt við það, þó með gríðarlegri virðingu fyrir þeim sem það þora. Þannig er með málavexti að eftir að hafa kannað áhrifin af þessu frumvarpi er í stuttu máli orðið mjög ljóst að við þekkjum þau ekki. Við erum í þannig aðstæðum að við vitum ekki heldur hvað gerist ef við samþykkjum ekki málið. Það er allt mjög óljóst. Eins og kom fram hjá einum sérfræðingi sem nefndin hitti er hagfræðin sjálf óvenjugagnslaus um þessar mundir vegna þess að aðstæðurnar eru svo fordæmalausar. Það er svo skrýtið ástand, skrýtnar breytur í gangi, að það eina sem í raun og veru er hægt að segja með algerri vissu er að stærsta vandamálið er og verður atvinnuleysi. Það getur breyst. Það getur breyst mjög hratt, kannski verður það ekki lengur aðalvandamálið í ágúst. Kannski verður það eitthvað annað, vaxtahlaup eða verðbólga eða eitthvað því um líkt. Það lítur ekki þannig út akkúrat núna. En aðstæðurnar eru þannig að kenningarnar eru veikburða því að þær hafa ekki verið prófaðar í þessum aðstæðum. Þær eru svo sjaldgæfar og sérstakrar að mjög erfitt er að bera þær saman við það sem er þó þekkt í hagfræðinni.
Hv. 7. þm. Reykv. n. fór ágætlega yfir fyrirvarana sem voru ræddir í sambandi við einyrkja og þess háttar og óttann við að eignir gætu rýrnað, birgðir og þess háttar og allt gott um það að segja. Nefndin hefur skilað áliti sínu um að hægt sé að koma til móts við það, í það minnsta að einhverju leyti. Einnig kom fram lagalegi vinkillinn á þessu sem er að gjaldþrotalögin eins og þau eru í dag, eru vel þekkt, mörg dómafordæmi, menn vita hvernig þau virka. Hér erum við aðeins að fikta í þeim eins og hv. þingmaður nefndi áðan. Það er í eðli sínu lagalega hættulegt upp á að allir aðilar í viðskiptum og afleiðingum þeirra geti gengið að réttindum sínum sem gefnum fyrir fram. Auðvitað komast þau á hreint fyrir dómstólum með tímanum og allt í góðu með það. En áður en það er komið á hreint er óvissa uppi og hún ein og sér er slæm, óháð því hver endanleg niðurstaða verður. Óvissan sjálf er slæm.
Það var einnig farið inn á þann punkt frá sérfræðingi sem nefndin hitti að fyrirtæki, sér í lagi í ferðaþjónustu, hafa aðgang að ákveðinni tegund af „láni“, sem er fyrirframgreiðsla frá viðskiptavinum. Oft kaupa viðskiptavinir ferðir eða hótelgistingu og borga fyrir fram. Það er í eðli sínu ákveðin tegund af láni þótt við tölum kannski ekki um það þannig í daglegu tali. Ef það verður venjan að viðskiptavinir glati þessu fé er hætt við því að þeir hætti að treysta fyrirtækjum fyrir slíkum fyrirframgreiðslum. Það grefur undan þessu lánaformi sem fyrirtækin hafa aðgang að og þetta getur verið, heyrðum við á fundum, frekar stór hluti af því lausafé sem t.d. fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa aðgang að. Þarna er ákveðin hætta á því að það grafi undan trausti á því að fyrirtæki geti staðið við þjónustuskuldbindingar sínar, ekki endilega fjárhagsskuldbindingar heldur þjónustuskuldbindingar þegar greitt fyrir fram í iðnaði og þjónustu þar sem það er frekar reglan en undantekning. Þetta er dæmi um slæmar afleiðingar sem málið gæti haft, við vitum það ekki enn þá og munum ekki vita fyrr en á það reynir.
Annað sem var nefnt voru svokölluð kokteiláhrif. Það hljómar kannski ekki illa í eyrum allra hv. þingmanna, en í þessu samhengi fela þau í sér að margar lausnir eru settar fram og hver og ein er ágæt, jafnvel er hægt að ganga vel úr skugga um hver sé ágæt, en þegar þeim er blandað saman á óvenjulegum tímum við óvenjulegar aðstæður er hætt við því að heildarútkoman hafi í för með sér einhverjar hliðarverkanir sem eru óþekktar fyrir fram og geta verið skaðlegar, jafnvel aðeins af þeirri einföldu ástæðu að þær eru óþekktar. Við þessu var varað. Þetta er dæmi um ógn sem er ekki endilega mögulegt fyrir hið háa Alþingi að komast hjá, í ljósi aðstæðna og í ljósi þess að við þurfum vissulega að gera eitthvað. En á sama tíma megum við ekki bara gera eitthvað. Við verðum að gera eitthvað sem við erum þokkalega viss um að sé til bóta. Ég vona vitaskuld að þetta verði til þess og eins og ég sagði í upphafi ræðunnar ber ég fulla virðingu fyrir því að fólk styðji þetta mál þrátt fyrir þessa óvissu. Ég var næstum því á álitinu með fyrirvara, en svo fór sem fór.
Ég ítreka að stóri vandinn sem við vitum að blasir við okkur í nánustu framtíð er atvinnuleysi. Einn sérfræðingur sem við í nefndinni hittum benti á að það væri óljóst hvernig þetta frumvarp tæklaði það vandamál. Nú eru auðvitað ekkert öll frumvörp hugsuð til þess að tækla það vandamál en það er bara mjög mikilvægt að við höfum í huga að stóri vandinn sem við stöndum frammi fyrir er atvinnuleysi. Á Alþingi hefur verið fjallað mikið um að halda fyrirtækjum í rekstri og þess háttar en við þurfum að hugsa meira um það hvernig við hjálpum manneskjum án atvinnu með öðrum leiðum en bara þeim að reyna að halda fyrirtækjum í rekstri til að tryggja atvinnu. Það verður mjög mikið atvinnuleysi, alveg sama hvað, og við getum ekki leyft okkur að gleyma þeim hópi með því að einblína of mikið á að hafa hann minni en ella yrði. Ég geri ekki lítið úr þeim ágætu leiðum sem eru farnar til að fyrirtæki geti gengið áfram og þar með boðið upp á atvinnu. Við megum bara ekki gleyma hópnum sem verður óhjákvæmilega atvinnulaus því að hann er stór. Það er hætt við því að hann verði lengi atvinnulaus þótt það sé auðvitað einn þeirra óvissuþátta sem við vitum hreinlega ekki enn þá hvernig verður.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, virðulegur forseti. Ég vildi bara koma hér stutt upp og gera grein fyrir fyrirvörum mínum við þetta mál. Ég vona að sjálfsögðu að áhrif þess verði sem best og að við komumst út úr þessum óvissutímum sem allra fyrst og ég vænti þess að allir hv. þingmenn óski þess einnig.