150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

heilbrigðisþjónusta.

439. mál
[18:05]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferð yfir nefndarálitið. Ég er með vangaveltur sem mig langar að bera fram. Þegar frumvarpið var kynnt í samráðsgátt komu þangað 25 umsagnir, mjög margar frá þeim sem starfa innan heilbrigðiskerfisins, ýmsum fagstéttum en einnig Landspítala og fleirum og fleirum.

Nú hefur málið legið inni hjá okkur í hv. velferðarnefnd. Þangað bárust 14 umsagnir, m.a. frá fagstéttum, Landspítala, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fleirum. Mér sýnist á nefndaráliti og ég sé á umsögnum að hvorki í samráðsgátt né við afgreiðslu málsins úr hv. velferðarnefnd hefur verið tekið á þeim álitaefnum og þeim fjölmörgu athugasemdum sem bornar voru fram í stórum málum. Maður veltir aðeins fyrir sér hvernig meiri hlutinn og ríkisstjórnin sér fyrir sér að eiga samráð við þá hagsmunaaðila sem leitað er til, hvort hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson hafi ekki áhyggjur af því að með því að virða umsagnir ítrekað að vettugi gætu Alþingi og stjórnvöld staðið frammi fyrir því að þeir sem gerst þekkja mál, hvernig þau eru unnin og hvernig staðið er að þeim, hætti að leiðbeina okkur þegar kemur að lagasetningu á Alþingi.