heilbrigðisþjónusta.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur andsvarið og spurningarnar. Ég hef ekki áhyggjur af því að þessir aðilar hætti að veita okkur tiltal frekar en aðrir hagsmunaaðilar eða hagsmunasamtök, eftir atvikum, sem veita umsagnir um þingmál. Það er ekki alltaf tekið tillit til allra þeirra þátta sem menn benda á.
Ég vil meina að þrátt fyrir að auðvitað sé ekki tekið tillit til ýtrustu sjónarmiða í öllu sem fram kemur er það engu að síður gert í nokkrum atriðum í þessu þingmáli, til að mynda varðandi faglega ábyrgð heilbrigðisstétta, svo að maður tíni eitthvað til, sem ég tel raunar að sé afar mikilvægt enda komu ábendingar um það frá mörgum fagaðilum og eins frá einstaklingum utan úr bæ. Slíkar umsagnir bárust gjarnan inn á samráðsgáttina ef ég er ekki að rugla saman því sem kom inn á hana og því sem kom fram í meðförum þingsins.
Ég held að það eigi alls ekki að skoða það sem svo að þótt ekki sé tekið tillit til allra ábendinga og sjónarmiða séu það skilaboð til hagsmunaaðila um að þeir eigi að hætta að senda okkur ábendingar. En auðvitað geri ég ráð fyrir því að þeir sem senda ábendingar og umsagnir um þingmál geri ekki endilega alltaf ráð fyrir að tekið sé tillit til alls þess sem þeir biðja um eða benda á. Sumt er útskýrt í nefndarálitinu eins og raunar margt í þessu áliti, til að mynda hlutverk hjúkrunarheimila og dagdeilda. Ég tel að það sé í þessu tilviki fullnægjandi og eigi alls ekki að vera tilefni til þess að menn hiki við að senda þingnefndum erindi.