heilbrigðisþjónusta.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið. Hann nefndi þetta með fagráðin og að margir hefðu gert athugasemdir við þau, sem er rétt. Þessi umræða hefur verið í gangi a.m.k. síðan 2003 og ég man alveg eftir því þegar hugmyndin um fagráð kom fyrst upp. Þá fannst öllum það algjörlega ómögulegt. Síðan var ákveðið að taka fagráðin inn í lögin sem heimild og núna er verið að gera þau að reglunni. Á öllum stigum hafa heilbrigðisstéttirnar a.m.k. gert athugasemdir ef ekki beinlínis sett sig upp á móti þessum breytingum. En það verður að horfa til þess að heilbrigðisþjónusta í heiminum er að breytast mjög mikið. Það verður æ nauðsynlegra að fleiri fagstéttir komi að borðinu og ég tel að það sé ein af skyldum stjórnvalda að fylgjast með þeirri þróun, bregðast við og taka ákvarðanir í samræmi við það.
Ég ítreka það sem ég sagði áðan að eftir sem áður er heimilt — og við segjum í nefndarálitinu að auðvitað gerum við ráð fyrir því — að stofnanir skipi sínum ráðum eftir því hvernig starfsemi þeirra er háttað. Eins og ég sagði líka í ræðu minni lýstu framkvæmdastjórar eða forstöðumenn einhverra stofnana því raunar beinlínis yfir að þeir myndu halda inni læknaráðum og hjúkrunarráðum þrátt fyrir að sú skylda væri komin á að hafa eitt stórt sameiginlegt fagráð. Ég held að það sé bara mikið fagnaðarefni að þau hafi gert það.
Varðandi það sem þingmaðurinn sagði um skilgreiningu þriðja stigs þjónustu þá er hún, eins og hún kemur fram í frumvarpinu, heilbrigðisþjónusta sem veitt er á sjúkrahúsi og krefst sérstakrar kunnáttu, háþróaðrar tækni, dýrra vandmeðfarinna lyfja og aðgengis að gjörgæslu. (Forseti hringir.) Ég sé varla fyrir mér að slíka þjónustu, eins og hún er skilgreind þarna og í greinargerð, verði hægt að veita annars staðar en á spítölum. Það yrði (Forseti hringir.) þá í undantekningartilfellum. En líkt og er með hjúkrunarheimilin verða auðvitað gerðir samningar um annars og þriðja stigs þjónustu þar í einhverjum tilvikum en lögin (Forseti hringir.) útiloka það ekki.