heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Við tölum um mikilvægt málefni hérna. Það eru ekki litlar breytingar sem eiga sér stað með þessu frumvarpi. Það mun hafa áhrif á störf og skipulag á stofnunum. Mig langar aðeins að fjalla um stöðu heilbrigðisstofnana sem ekki eru í ríkiseigu en eru reknar fyrir opinbert fé. Hvaða kröfur gerir kaupandi þjónustunnar? Hvað með eftirlit með starfsemi og skipulagi þeirra, samningum við þær, eftirlit með eignarhaldi og stöðugleika og starfsöryggi þeirra og áreiðanleika? Áfram er gert ráð fyrir framkvæmdastjórnum. En hvað um stjórnir og samsetningu þeirra og valdsvið og ábyrgð? Ég spyr í ljósi nýlegrar reynslu varðandi stærstu endurhæfingarstofnun Íslands, Reykjalund, þar sem stofnunin var sett í upplausn, fyrirmyndarstofnun, fyrirmyndarstjórnun, forstjórinn rekinn á mjög óljósum grunni og hvar endaði þetta? Í fanginu á heilbrigðisráðherra. Ég þarf ekki að tíunda það nánar. Ég geri mér grein fyrir því að Sjúkratryggingar ríkisins gera samningana, en þurfum við ekki að vera þarna á varðbergi?
Í öðru lagi mátti skilja svo á frumvarpinu að það væri á valdi forstjóra hvort yfir höfuð væri eitthvert formlegt skipurit til staðar. Því var síðan skotið inn á síðari stigum og forstjóra falið að kynna ráðherra það og hafa samráð við framkvæmdastjórn ef hún er starfandi. Forstjóri ræður því sem sagt. Hann getur ákveðið tillögu að skipuriti og kynnt það ráðherra en þarf ekki að hafa samráð við nokkurn mann. En ég spyr: Hvað með fagráð sem eru lögbundin? Er ekki ástæðu til þess að þau komi að þessu varðandi skipulagið af því að þau eru lögbundin?