150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

heilbrigðisþjónusta.

439. mál
[18:16]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni fyrir spurningarnar. Eins og er kunnugt er ráðningarsamband forstjóra heilbrigðisstofnunar í rauninni við ráðherra eins og lögin eru í dag og eins og það hefur verið undanfarin misseri. Þannig hefur það verið svo að í rauninni þarf að vera alger trúnaður þar á milli.

Varðandi hins vegar það að forstjóri öðlist aukið vald með því að hann setji skipurit sem hann þurfi bara að kynna ráðherranum þá felst í því sú skylda að sá sami forstjóri hafi samskipti við sinn næsta yfirmann sem í þessu tilfelli er ráðherrann. Ég hef ekki trú á því að stærri heilbrigðisstofnanir velji þann kost að vera ekki með framkvæmdastjórnir, ég sé það ekki fyrir mér. Ég treysti því hins vegar að telji ráðherrar að forstjórar stofnananna séu að fara út fyrir þau mörk sem getur talist eðlilegt þegar þeir birta ráðherra skipuritið og kynna það og rökstyðja muni ráðherrar væntanlega núna og í framtíðinni gera athugasemdir þar um. Ég minni aftur á að ráðningarsamband forstjórans er við ráðherrann. Það er ekki við framkvæmdastjórnina.

Hvað varðar hvort fagráðin eigi að koma að gerð skipurita þá tel ég að í sjálfu sér útiloki lögin það ekki, enda er það atriði sem snýr að skipulagi heilbrigðisþjónustunnar, sem sagt eins og kemur í fram í frumvarpinu. Ég ítreka þó að ráðherra mun samkvæmt (Forseti hringir.) lögunum setja fagráðunum verklagsreglur eða reglugerðarheimild þar um. Ég átti svo ekki tíma til að svara restinni.