150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

heilbrigðisþjónusta.

439. mál
[18:19]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Þór Gunnarssyni fyrir andsvarið. Ég nefndi þetta vegna þess að framkvæmdastjórnirnar eru tilnefndar í þessu sambandi en ekki fagráðin sem eru þó sannarlega lögbundin samkvæmt 10. gr.

Mig langaði að spyrja aðeins út í ráðningarsambandið. Í 9. gr. núgildandi laga er ákvæði um að heimilt sé að ráða starfsmenn sem gegna stjórnarstörfum í allt að fimm ár. Samkvæmt frumvarpinu fellur það út. Mér er spurn hvers vegna í ósköpunum forstjóri stærstu heilbrigðisstofnunar landsins lagði eindregið til að þetta væri inni. Þetta hefði þjónað hagsmunum stofnunarinnar mjög vel, aukið á fjölbreytni og endurnýjun í stjórnun við aðstæður þar sem störf á viðkomandi einingu eru oft mjög krefjandi. Það eru sífelldar breytingar í þessum geira og þörf á nýjustu þekkingu oft og títt. Mér finnst röksemdafærsla nefndarinnar ámátleg, ég verð að segja það. Það eru engin rök. Þetta eru bara „af því bara“-rök og í raun endurspeglast í þessu forkastanleg íhaldssemi. Það er kjörið að losa aðeins um þetta stífa ráðningarsamband sem er í opinbera geiranum. Opinberir starfsmenn eru ekki stofn sem er í útrýmingarhættu og ég bara spyr: Hvers lags ráðslag er þetta?