heilbrigðisþjónusta.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni fyrir andsvarið. Af hverju að fella þetta út? Ég tek ekki undir með þingmanninum að það séu einhver „af því bara“-rök sem búa þar að baki heldur hitt að meiri hluti nefndarinnar telur ekki ástæðu til að halda inni heimild um hefðbundna tímabundna tveggja ára ráðningu og þar með ákveða að réttindi þeirra starfsmanna skuli eftir þá ráðningu, sem forstjórarnir hafa eftir sem áður heimild til, séu lakari sem því nemur. Að mati meiri hlutans er engin ástæða til að halda áfram að gefa þetta færi. Frekar eigi að vera nokkuð ljóst af hálfu forstjóra eftir tveggja ára tímabundna ráðningu hvort hann vilji hafa starfsmann í vinnu áfram eða ekki. Að mínu viti er þetta spurning um réttindi og skyldur starfsmanna. Mér finnst mikilvægt að það sé tryggt að menn séu ekki að nota ákvæðið til þess í rauninni að geta, hvað skal segja, eftir hentugleikum ráðið og rekið starfsmenn í þetta langan tíma og þess vegna sé alveg hæfilegt, eins og er í lögum um aðrar stofnanir, að halda sig við tveggja ára markið.