heilbrigðisþjónusta.
Herra forseti. Hér er um að ræða mál sem er að mörgu leyti ágætt. Það er jákvætt að skilgreina betur þessi þrjú stig þjónustunnar, en staðreyndin er sú að skautað er mjög hratt yfir ákveðna þætti sem lúta að mikilvægum innviðum mikilvægra heilbrigðisstofnana. Í öðrum atriðum er tekin mjög hörð afstaða án mikillar umræðu og í raun án raka. Við í Viðreisn höfum ekki getað greitt þessu máli atkvæði, höfum jafnvel verið á móti því vegna afgreiðslunnar. En nú er búið að kalla það inn í nefnd aftur og í ljósi þess munum við sitja hjá núna.