150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

heilbrigðisþjónusta.

439. mál
[20:48]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér greiðum við atkvæði um breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu sem verið hafa í hv. velferðarnefnd í hálft ár. Við höfum haldið marga fundi um málið. Tilkynnt var með rúmlega tveggja sólarhringa fyrirvara að leitast yrði við að taka málið út á fundi nefndarinnar, sem var gert. Tekinn var nánast heill fundur í nefndinni til að ræða málið. Telji menn hins að ekki sé nóg að gert í því og að ekki sé nógu gott að menn nái ekki fullkomnu samkomulagi um öll atriði í þeim málum sem eru fyrir þinginu, er sjálfsagt að ræða málið á enn einum fundi í nefndinni. Ég mun leggja mig fram um að láta það allt saman ganga ljómandi vel. En ég vísa því á bug að málið sé illa unnið.