fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Virðulegur forseti. Það er nú þegar, eftir að Covid kom, búið að auka fjármagnið í áætluninni um 6,5 milljarða. Það hefur kannski verið einn af fáu ljósu punktunum í þessu ástandi. Samgönguverkefni og framkvæmdir í samgöngum henta mjög vel þegar þrengir að í efnahagslífinu. Hægt er að dreifa framkvæmdum um allt land og hafa fjölbreytt verkefni þannig að ekki myndist þensla. Hægt er að fara í smærri verkefni sem eru tilbúin mun fyrr og hægt að leggja af stað hratt til að áhrifin komi fram sem fyrst. Svo er hægt að hefja undirbúning að stærri verkefnum. Uppi eru áform um að auka samgönguframkvæmdir enn meira í fjármálaáætlun í haust. Við vitum bara ekki hvaða stærðir það eru en við leggjum til vissar stærðir í áherslum okkar og vonandi ná þær fram að ganga.