150. löggjafarþing — 117. fundur,  15. júní 2020.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[22:58]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir skelegga framsöguræðu 2. minni hluta og líka fyrir gott samstarf í nefndinni. Kannski helgast það af því að við erum mikið til sammála um margt og ég get tekið undir margt sem fram kom í nefndarálitinu sem hann fór yfir. Mér finnst þó sumt í því einkennast svolítið af því sama og mér fannst í nefndaráliti 1. minni hluta, að vilja fá allt fyrir ekkert, að hann væri tilbúinn í margt en leiðirnar að því væru ómögulegar. Þess vegna langar mig að spyrja út í höfuðborgarsáttmálann, af því að þar erum við sammála um margar mikilvægar framkvæmdir. Hvernig telur hv. þingmaður að hægt sé að ná þeim fram án samkomulags við sveitarfélögin sex á höfuðborgarsvæðinu? Hvernig heldur hann að hægt sé að flýta framkvæmdum við stofnbrautirnar, skipulaginu fyrir Sundabraut og fleira, ef ekkert er látið undan kröfum þeirra sem sjá um skipulagsvaldið?