150. löggjafarþing — 118. fundur,  16. júní 2020.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[17:11]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og samstarfið í umhverfis- og samgöngunefnd þar sem mér finnst hann oft koma með áhugaverð sjónarhorn á málin, en stundum átta ég mig ekki á sýn hans á samgöngur. Ég á m.a. mjög erfitt með að skilja ávinninginn af því að þekkja vegtegundir um land allt. Hvað er vegtegund í huga þingmannsins og hverju erum við bættari að vita æskilega vegtegund?

Þá langar mig að taka dæmi. Nú er Öxi á dagskrá sem PPP-verkefni. Þar var ruddur jeppaslóði 1959, síðan þá hefur hann smátt og smátt verið lagfærður með mismarkvissum hætti, ein beygja hér og önnur beygja þar og ein brekka þarna. Við vitum öll að það þarf að byggja þarna nýjan veg ef hann á að bera meiri umferð en þar fer um í dag. Erum við einhverju bættari með því að þekkja vegtegundir?